Vinningshafar í teiknisamkeppni

mjolkursamkeppni

Mynd Ölmu Bjarkar

Nýlega voru tilkynnt úrslitin í árlegri teiknisamkeppni grunnskólanema sem er haldin í tengslum við Alþjóða skólamjólkurdaginn. Yfir 1.300 teikningar bárust í keppnina frá 70 skólum. Dómnefnd sagði verkefnið hafa verið sérstaklega krefjandi vegna mikilla gæða og sköpunargleði. Við í Sæmundarskóla erum einkar stolt af að eiga tvo sigurvegara, en myndir Ölmu Bjarkar Þorgeirsdóttur og Ronju Rutar Eggertsdóttur, nemenda í 4. bekk, voru á meðal verðlaunamynda. 

Sigurmyndirnar