Sigurhandrit á Sögum
Nemendur í 7. bekk áttu verðlaunahandrit.
Árlega fer fram leikritakeppni Sagna þar sem skorað er á krakka á aldrinum 8-12 ára til að taka þátt og senda inn handrit. Núna í ár valdi Borgarleikhúsið tvö vinningshandrit úr leikritasamkeppni Sagna og var annað þeirra eftir Sæmóstráka í 7.bekk þá Axel Frey Garðarsson, Hilmar Birkisson, Hrein Atla Gunnarsson og Sævar Hrafn Garðarsson með leikritið Geimverur í heimsókn.
Leikritin verða síðan sviðsett af nemendum á lokaári Leiklistarskóla Borgarleikhússins ásamt fagfólki. Við erum svo stolt af þeim!