Stóra upplestrarkeppnin
7. bekkur í Stóru upplestrarkeppninni
Síðastliðinn föstudag var mikil gleði hér í Sæmundarskóla þegar skólahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin. Þar stigu á stokk 12 frábærir 7. bekkingar sem kepptu í vönduðum upplestri. Þau höfðu öll eytt síðustu vikum í stífar æfingar og var loks komið að uppskerustund. Þau stóðu sig öll eins og hetjur og erum við afar stolt af þeim!
Þau sem komust áfram og munu keppa í Stóru upplestrarkeppninni fimmtudaginn 22. apríl eru þau Sigurbjörg María Leifsdóttir og Sævar Hrafn Garðarsson. Varamaður þeirra er Yrsa Unnarsdóttir.
Við óskum þeim innilega til hamingju og góðs gengis!