Skólahljómsveit Grafarvogs á samveru

skolahljomsveit

Stuð á samveru

Á föstudaginn kom skólahljómsveit Grafarvogs í heimsókn á samveru. 

Skólahljómsveit Grafarvogs hóf starfsemi 1992 og þjónar hún m.a. Sæmundarskóla. Á samverunni fengum við að kynnast hljóðfærum hljómsveitarinnar og hún spilaði nokkur lög.

Heimsóknin heppnaðist mjög vel og var gaman að sjá hvað krakkarnir voru áhugasamir um hljóðfærin og hljómsveitina.