Skólasetning

saemoskolinn

Skólasetning og skólabyrjun

Skólasetning Sæmundarskóla verður mánudaginn 24. ágúst kl. 8:30 í sal skólans. Að lokinni skólasetningu munu nemendur fylgja umsjónarkennurum í sínar bekkjarstofur þar sem farið verður yfir hagnýt atriði varðandi skólabyrjun, stundatöflur og annað sem mikilvægt er að vita við upphaf skólaársins. Skóli hefst samkvæmt stundatöflum þriðjudaginn 25. ágúst.

Vinsamlegast athugið að nýir nemendur og nemendur með nýja umsjónarkennara eiga þegar að hafa fengið boð í viðtöl næstkomandi föstudag.

Skóladagatal og aðrar hagnýtar upplýsingar má finna á heimasíðu skólans. Ef einhverjar spurningar vakna er velkomið að hafa samband við skrifstofu skólans.