Dans Afríka

dansafrikasamvera

 

Við fengum heldur betur góða heimsókn á samveru síðasta föstudag en þá kom til okkar hópur frá Gíneu í Vestur-Afríku. Heimsóknin var liður í árlegri afrísku menningarhátíðinni dans Afríka Barakan Festival Iceland sem var nú haldin í níunda sinn í samstarfi með Reykjavíkurborg.

Öllum nemendum skólans var boðið á samveru og mátti sjá aðdáun, furðu og gleði á andlitum nemenda á meðan á sýningunni stóð. 

Virkilega skemmtilegur endir á fyrstu skólavikunni okkar.