4. bekkur í Sandgerði

þekkingarsetrið

Nemendur í 4. bekk læra um hafið og lífríki þess.

Í 4. bekk læra nemendur um hafið og lífríki þess. Af því tilefni heimsótti árgangurinn Þekkingarsetrið í Sandgerði síðastliðinn mánudag. Í heimsókninni fengu nemendur að heyra sögu franska heimskautafarans Jean-Baptiste Charcot, sem var einn merkasti landkönnuð síðustu aldar en hann fórst með skipi sínu Pourquoi-pas? og áhöfn við Mýrar 1936. 

Náttúrugripasýningin með yfir 70 uppstoppuðum dýrum var einnig skoðuð þar sem nemendur notuð Fróðleiksfúsa, sem er gagnvirkt spjaldtölvuforrit, til að finna og fræðast um dýrin á sýningunni.

Hápunkturinn var þó lifandi sjávardýrin og fengu nemendur að skoða og snerta krossfisk og fylgjast með stórum og smáum lifandi kröbbum.

Ferðin gekk vel og voru nemendur sér og skólanum til mikils sóma.