Skáld í skólum
Kortleggjum bækur.
Í gær fengu nemendur á miðstigi skemmtilega heimsókn frá rithöfundahjónunum Yrsu Þöll og Gunnari Theodór í tengslum við verkefnið Skáld í skólum.
Þau voru með áhugaverða kynningu undir yfirskriftinni „Kortleggjum bækur!“ þar sem þau sýndu hvernig kort geta verið mikilvægur hluti af sögum og hjálpað lesendum að ferðast um ævintýralega söguheima. Nemendur fengu að sjá fjölbreytt kort úr þekktum bókum og kynnast því hvernig ímyndunaraflið getur skapað heilu ævintýraheimana.
Kynningin var skemmtileg og hvetjandi og gaf nemendum innblástur til að skapa sína eigin söguheima.
Við þökkum Yrsu og Gunnari kærlega fyrir skemmtilega heimsókn! 📖