Grunnskólamót í handbolta

handbolti5b

 

Nemendur í 5. og 6. bekk tóku þátt í grunnskólamóti í handbolta í þessari viku og stóðu sig með mikilli prýði.

5. bekkur sendi fjögur lið til keppni, eitt strákalið og þrjú stelpulið. Eitt stelpuliðanna náði glæsilegum árangri og hafnaði í 3. sæti! 🥉

6. bekkur sendi fimm lið til keppni, þrjú strákalið og tvö stelpulið. Eitt strákalið og bæði stelpuliðin tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni.

Mikil gleði og ánægja ríkti meðal nemenda og var gaman að sjá hve mikil samheldni, liðsheild og keppnisgleði var hjá þeim öllum.

Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu!