Íslenskuverðlaun unga fólksins
Þrír nemendur Sæmundarskóla hlutu Íslenskuverðlaun unga fólksins við hátíðlega athöfn í Hörpu á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember en það eru Shukria í 3. bekk, Karítas Helga Dís í 6. bekk og Hlynur Atli í 10. bekk.
Íslenskuverðlaun unga fólksins eru veitt árlega á vegum skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Markmið þeirra er að efla áhuga ungs fólks á íslenskri tungu og hvetja nemendur til að rækta hæfileika sína í töluðu og rituðu máli.
Verndari verðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Verðlaunin eru veitt nemendum sem hafa sýnt framúrskarandi færni, frumleika og sköpunargleði í meðferð íslenskunnar eða tekið eftirtektarverðum framförum í tungumálinu.
Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með verðlaunin og fjölskyldum þeirra sömuleiðis. Við erum afar stolt af þeim.