100 daga hátíð

100 daga hátíð 1. bekkur

Það var heldur betur hátíð í 1. bekk í dag í tilefni af því að nemendur hafa verið 100 daga í skólanum. Þau gerðu hálsmen úr weetos og seríósi og að sjálfsögðu voru 100 stykki í hverju hálsmeni. Nemendur töldu einnig alls konar góðgæti í poka, þar sem tugurinn var þjálfaður.  Fleiri skemmtileg verkefni voru unnin í tilefni dagsins sem heppnaðist mjög vel.