7., 9. og 10. bekkur á faraldsfæti
7. bekkur á Reykjum
Reykir, Vindáshlíð og Þórsmörk
Í síðustu viku fóru nemendur í 7. bekk á Reyki. Á Reykjum fá nemendur tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni og sjálfsmynd sína og vinna með styrkleika sína. Yfirleitt dvelja nemendur í búðunum frá mánudegi til fimmtudags en vegna uppstigningardags komu nemendur heim á miðvikudagskvöld. Heilt yfir gekk ferðin vel og nutu nemendur sín vel í öðru umhverfi.
Í þessari viku hefur 9. bekkur dvalið í skólabúðunum í Vindáshlíð. Skólabúðirnar stuðla að hver og einn fái tækifæri til að blómstra í öruggu og stuðningsríku umhverfi.
10. bekkur er svo staddur í Þórsmerk í sinni útskriftarferð. Líkt og undanfarin ár fór 10. bekkur í Þórsmörk í útskriftarferð enda býðir svæðið upp á stórkostlega náttúru og góða aðstöðu.