Gestir frá Danmörku
Sæmundarskóli tekur þátt í Erasmus+ verkefni.
Erasmus+
Nemendur í 9. bekk taka þessi misserin þátt í Erasmus+ verkefni. Vikuna 8. - 13. mars fengum við heimsókn frá Danmörku. Þessa viku var heilmikið brallað, m.a. var farið á skíði í Bláfjöll, sund í Dalslaug og Gullni hringurinn var tekinn. Að þessu sinni voru gestgjafarnir eingöngu stelpur.
"Við stelpurnar í 9. bekk tókum þátt í Erasmus+ verkefni. Við fengum heimsókn frá 12 krökkum frá Odense í Danmörku. Okkur fannst mjög skemmtilegt að kynnast nýju fólki og sjá hvernig það er að fá ókunnugt fólk heim til okkar í viku. Við lærðum að tjá okkur betur, fengum betra sjálfstraust og lærðum allskonar nýtt.
Við hlökkum mikið til að fara til þeirra í september og kynnast þeirra menningu. Við mælum mjög mikið með þessu fyrir alla sem fá tækifærið til þess. Þetta er mjög gefandi og lærdómsríkt."