Gleði á Sæmundarleikum
Sú hefð hefur skapast í Sæmundarskóla að á öskudaginn eru Sæmundarleikar. Þá fara nemendur í aldursblönduðum hópum á milli stöðva og leysa fjölbreyttar þrautir og safna stigum. Nemendur í unglingadeild eru hópstjórar. Þeir passa upp á sinn hóp og tryggja að allir fái að taka þátt.
Mjög margir nemendur mættu í búningum og gleðin var allsráðandi. Dagurinn gekk mjög vel og náðu margir hópar að klára allar þrautirnar.