Heimsókn frá Fram

framheimsokn

Framarar í heimsókn.

Leikmenn og þjálfari kvennaliðs Fram komu í heimsókn til okkar í Sæmundarskóla í dag

Fram tekur á móti Stjörnunni í gríðarlega mikilvægum leik í Bestu deildinni á morgun laugardag kl. 14:00 á Lambhagavelli. Frítt er á leikinn í boði Íbúasamtaka Úlfarsárdals.
 
Leikmenn og þjálfari Fram buðu nemendum á leikinn á morgun og hvöttu þá til að taka fjölskyldur sína og vini með.
 
Framstelpurnar ætla sér ekkert nema sigur á morgun og hvetja alla sem vettlingi geta valdið til þess að mæta á Lambhagavöllinn  og hjálpa þeim í sinni baráttu.  Stuðningur áhorfenda getur skipt öllu máli.
 
Eins og áður segir er frítt á leikinn í boði Íbúasamtaka Úlfarsárdals og því engin afsökun til að mæta ekki!  Fjölmennum á Lambhagavöll, klæðumst bláu og hvetjum Framstelpurnar til sigurs.

 
Áfram FRAM!