Hrekkjavaka í Sæmundarskóla

hrekkjavaka

Hrekkjavökustemning í skólanum 👻

Það var heldur betur líf og fjör í skólanum í dag! Alls kyns furðuverur, vættir og skemmtilegar persónur voru á sveimi um skólann í tilefni þess að hrekkjavakan er á morgun. 

Nemendur í 3. bekk enduðu vikuna á frábærri samveru þar sem þau sögðu okkur frá hringrás vatnsins, sem þau hafa verið að læra um í þemavinnu. Einnig sýndu þau skemmtileg myndbönd og dönsuðu fyrir okkur.

Samveran tókst einstaklega vel og kom öllum í sannkallað hrekkjavökuskap. 🎃👻