Jólaföndur foreldrafélagsins 🎄
Jólaföndur foreldrafélags Sæmundarskóla fór fram í notalegri jólastemningu síðasta laugardag þar sem gleði og sköpunarkraftur voru í fyrirrúmi.
Fjölmargir nemendur og forráðamenn mættu og áttu góða stund saman. Nemendur í 10. bekk sáu um veitingasölu en ágóðinn rennur til fjáröflunar fyrir útskriftarferð þeirra.
Kærar þakkir til foreldrafélagsins fyrir skemmtilegan viðburð og allra sem tóku þátt fyrir ánægjulega samveru.