KVAN og 6. bekkur
Sú hefð hefur skapast í Sæmundarskóla að foreldrar og nemendur í 6. bekk hittast að hausti í fræðslu og hópefli undir leiðsögn fagfólksins hjá KVAN. Sambræðslan þetta haustið var í gær og gekk ótrúlega vel. Samstarf skóla og foreldra skiptir miklu máli við styrkja samskipti og skapa vettvang þar sem allir vinna saman að því að gera bekkjarandann sem bestan og þetta er einn liður í því.
Í framhaldinu verður svo áfram unnið með niðurstöður fundarins af hálfu kennara og foreldra þar sem áhersla verður lögð á að byggja ofan á þann góða grunn sem lagður var og skapa áfram jákvæðan og góðan bekkjaranda.