Lesið fyrir leikskólanemendur

leikskolimynd

 

Eins og hefð er fyrir í Sæmundarskóla í kringum Dag íslenskrar tungu fór 7. bekkur á Reynisholt í vikunni og las bækur fyrir leikskólabörnin. Þau höfðu æft sig áður og valið bækur í samræmi við aldur barnanna. Nemendur stóðu sig frábærlega og leikskólabörnin fylgdust spennt með lestrinum.  

Með þessu verkefni hefst einnig formlega Stóra upplestrarkeppnin sem 7. bekur tekur þátt í á hverju ári en markmið hennar er að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri og skýrum framburði.