Sæmundarskóli í úrslit Skrekks

skrekkur26

 

Nemendur Sæmundarskóla stóðu sig glæsilega í Skrekk í ár og tryggðu sér sæti í úrslitum keppninnar með atriðið sitt „Sýndarmennska“.

Atriðið er afrakstur mikillar vinnu, sköpunargleði og frábærrar samvinnu nemenda. Það er sannarlega gaman að sjá hæfileika og metnað nemenda skína í gegn á sviðinu.

Við erum ótrúlega stolt af hópnum okkar og óskum þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!

Hægt er að sjá atriðið og önnur atriði keppninnar á ruv.is.