Sigurvegarar Sæmundarleika
Sigurlið Sæmundarleika 2026
Á öskudag hefur skapast sú hefð að nemendur fara um skólann í aldursblönduðum hópum og leysa alls konar þrautir. Margir nemendur mæta í búningum og stemningin er alltaf góð.
Í ár voru hóparnir 41 og náðu margir að heimsækja allar 33 stöðvarnar. Að þessu sinni var það lið 1 sem stóð uppi sem sigurvegarar en það lið skipuðu: Styrmir, Stefán og Róbert úr 4. bekk, Ari og Snæþór úr 7. bekk og Adam A, Neilas, Birgitta og Guðbjörg úr 10. bekk.