Tónleikar skólakórsins
Skólakór Sæmundarskóla hélt tónleika fyrir vini og vandamenn síðasta fimmtudag. Þetta voru frábærir tónleikar undir styrkri stjórn Auðar kórstjóra. Í kórnum eru nemendur í 3. - 6. bekk sem hafa verið á kóræfingum á föstudögum í vetur. Kórinn mun starfa áfram næsta vetur og það verður gaman að fylgjast með þeim vaxa og dafna.