Útskrift 10. bekkjar

10bekkurutskrift

Stærsti útskriftarárgangur skólans.

Í gær útskrifuðust 61 nemandi úr skólanum sem er stærsti útskriftarhópur frá upphafi. Hulda Dögg aðstoðarskólastjóri setti athöfnina, Eygló skólastjóri hélt ræðu þar sem hún kom m.a. inn á hveru mikilvægt það er að tala um það góða og jákvæða sem gerist í skólum landsins. Sýnd voru tónlistaratriði frá nemendum og Bryndís Kara og Rakel Kara fluttu ávörp fyrir hönd nemenda. Hápunkturinn var þó að vanda útskrift nemenda.

Útskriftin var hátíðleg og við þökkum foreldrum og nemendum í 10. bekk fyrir samfylgdina og óskum útskrifuðum nemendum alls hins besta í framtíðinni.