Við erum öll fyrirliðar
Nemendur úr 5. og 6. bekk á setningunni.
Nemendur í 5. og 6. bekk taka nú þátt í verkefninu "Við erum öll fyrirliðar" en verkefnið byggir á þeirri hugmyndafræði að öll sem vilja geti tileinkað sér leiðtogahæfni og leiðtogahegðun og unnið gegn neikvæðri hegðun. Um er að ræða þróunarverkefni sem skólarnir í hverfinu, KVAN og íþróttafélagið Fram taka þátt í.
Verkefnið var formlega sett á laggirnar í Íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal síðasta föstudag. Nemendur fá nú fræðslu um það sem felst í því að vera fyrirliði og síðan munu allir nemendur í 5. og 6. bekk fá tækifæri til að vera fyrirliðar og sýna leiðtogahegðun í skólanum og á æfingum.