Nám og kennsla

Teiknuð mynd af börnum að lesa og skrifa við borð í skólastofu.

Grunnskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá grunnskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Meginmarkmið stefnunnar er að öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.

Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.

Mentor

Mentor er upplýsingakerfi fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans. Forsjáraðilar og nemendur fá aðgangsorð að Mentor. Á fjölskyldusíðunni sjá forsjáraðilar stundatöflur barna sinna, heimavinnu, námsmat, skólasókn og fleira.

Kennsluáætlanir

Í kennsluáætlunum er lýst  inntaki námsins og námsmati sem gefa kennurum, nemendum og foreldrum yfirsýn um það sem fengist er við í kennslunni. 

Námsmat

Í Sæmundarskóla er notast við leiðsagnarmat þar sem mikil áhersla er lögð á vaxtarhugarfar og einstaklingsmiðun. Námsmat er fjölbreytt og nemendur vita hvaða hæfniviðmið er ætlast til að þeir nái. 

Kennsluhættir

Kennslan fer fram í lotum þar sem ákveðin viðfangsefni eru lögð til grundvallar í ákveðinn tíma. Kennsla er skipulögð út frá hæfniviðmiðum og er námsefni valið með tilliti til þeirra hæfniviðmiða sem unnið er með hverju sinni. 

Notast er við fjölbreyttar kennsluaðferðir og nemendum er kennt að þekkja og bera sig eftir þeim björgum sem í boði eru. Ávallt er reynt að taka tillit til stöðu og hæfni sérhvers nemanda.

Viðmið um skólasókn

Mikil áhersla er lögð á stundvísi nemenda í skólanum. Öll börn og ungmenni á aldrinum 6 til 16 ára eru skólaskyld og bera foreldrar/forsjáraðilar ábyrgð á því að börnin innritist í grunnskóla, sæki skólann og stundi þar nám.

Ef misbrestur verður á skólasókn ber foreldrum/forsjáraðilum og skólanum að bregðast við.