Ferð í unglingadeild Kyndils
Drengir í unglingadeildinni í smiðjunni - Útiskóli fóru í heimsókn til unglingadeildar Björgunarsveitarinnar Kyndils.
Heimsókn til Kyndils
Nokkrir drengir í 7. bekk fóru nýlega í heimsókn til unglingadeildar Björgunarsveitarinnar Kyndill í Mosfellsbæ 9. apríl. Var þetta gert á vegum smiðju - Útiskóli sem þeir hafa valið.
Í heimsókninni fengu þeir að taka þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum. Meðal annars var farið í hlutverkaleiki þar sem nemendur áttu að giska á mismunandi áverka og æfa sig í að bregðast við þeim. Þetta vakti mikinn áhuga og var bæði fræðandi og skemmtilegt. Einnig voru fleiri leikir og æfingar sem reyndu á samvinnu og útsjónarsemi.
Hluti af heimsókninni fór fram utandyra þar sem nemendur fengu að prófa sig áfram í aðstæðum sem tengjast starfi björgunarsveita.
Unglingadeild Björgunarsveitarinnar er fyrir börn og unglinga á aldrinum 13 ára (8. bekkur) upp í 18 ára. Öll börn eru velkomin og þátttaka er gjaldfrjáls. Æfingar fara fram á fimmtudögum kl. 19:30–21:30. Mikilvægt er að mæta klædd eftir veðri þar sem stundum er farið út.
Heimsóknin gaf nemendum góða innsýn í starfið og hvað það felur í sér og tókst afar vel. Nemendur voru mjög ánægðir með daginn.