Skólaslit

skolaslit2026saemi

 

Skólaslit í blíðskaparveðri

Skólaslit voru í Sæmundarskóla í dag. Nemendur og forráðamenn hittu umsjónarkennara inni í stofu en að því loknu var farið inn í sal þar sem skólakórinn söng nokkur lög áður en Eygló skólastjóri sleit skólaárinu. 

Skólaslitunum lauk með hátíð úti á skólalóð, þar sem nemendur í 9. bekk voru í aðalhlutverki og sáu til þess að allir fóru glaðir í sumarfrí með góðri tónlist, hoppuköstulum, andlitsmálningu, ís og pylsum.

Skóli hefst aftur 24. ágúst en Sæmundarskóli verður 20 ára á næsta skólaári og erum við strax farin að hlakka til.