Við erum öll fyrirliðar - lokahátíð

lokahatidfyrirlidar

Í vetur hafa nemendur í 5. og 6. bekk tekið þátt í verkefninu "Við erum öll fyrirliðar". Um er að ræða þróunarverkefni UMFÍ, KSÍ og UEFA (Knattspyrnusambands Evrópu) sem fyrirtækið KVAN vinnur við í samvinnu við íþróttafélagið Fram, Dalsskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla. 

Verkefnið byggir á þeirri hugmyndafræði að öll sem vilja geti tileinkað sér leiðtogahæfni og leiðtogahegðun og unnið gegn neikvæðri hegðun. Allir nemendur árganganna hafa fengið tækifæri til að vera fyrirliðar í ákveðinn tíma á sama tíma að nemendur hafa lært mikið um samkennd, einelti og leiðtogahæfni. 
 
Á föstudaginn var lokahátíð verkefnisins. Þá hittust allir nemendur í Framheimilinu. Þar sýndu nemendur dansa og myndbönd sem voru hlutar af svokölluðum, silfur- og gullverkefnum. Plötusnúður var á staðnum og var mikil stemning og gleði á svæðinu. 
 
Frábært verkefni sem fer vel af stað og við hlökkum til að halda því áfram á næsta skólaári.