Innra mat á skólastarfi í Sæmundarskóla

Lögð er áhersla á að allir starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar vinni markvisst innra mat sem er óaðskiljanlegur hluti af skóla- og frístundastarfi. Í því felst fagleg ígrundun og greining á gögnum til að meta gæði skólastarfs og hvort að tilætlaður árangur hafi náðst út frá fyrir fram ákveðnum viðmiðum.  

Skýrslur og áætlanir

Hvernig gekk skólastarfið á síðasta skólaári og hvaða umbætur er áætlað að fara í á þessu skólaári. Í sjálfsmatsskýrslu má finna samantekt á mati skólans á síðasta skólaári og umbótaáætlun fyrir komandi ár.